Upprunaleg útgáfa: http://www.w3.org/Style/customdtd
Þýðandi: Mark Goeder-Tarant
Athugið að þetta er þýðing af skjali frá W3C. Upprunalega skjalið er verndað með lögum umhöfundarrétt.Sérstakar þakkir fá SEO Web Audit og Tinnitus Support fyrir diggan stuðning við að gera þetta skjal aðgengilegt á íslensku
W3C stíls síðan inniheldur <blink> element. <blink> er ekki HTML element og síðan er ekki gild samkvæmt sumum HTML fullgildurum. Hvað er trikkið?
Reyndar er síðan forritunarlega (e: syntactically) gild, vegna þess að elementið er skilgreint í skjalinu. Svo lengi sem element eru skilgreind á réttan máta, verður síðan gild skv. skilgreiningunni á SGML / XML.
En síðan er ekkk semantically gild. Hún er SGML skjal, en ekki HTMl skjal þar sem að ekki er til nein stöðluð skilgreining á hvað <blink> þýðir.
Það að W3C stíls síðan noti óstaðlað element er því hugsað sem brandari. Ef þú þekkir til sögu W3C þá manstu kannski eftir því að ein ástæðan fyrir því að CSS var sett fram sem staðall var einmitt að koma í veg fyrir að allir vafrar þyrftu að styðja óstöðluð element eins og <blink>.
Tæknilega séð, að bæta óstöðluðu elementi við er gert með því að skrifa “custom DTD” og bæta því í fyrstu línuna á skjalinu (DOCTYPE línuna). T.d. er hægt að afrita HTML4 DTD skránna og breyta henni.
Ekki gera það! Skjöl þurfa að hafa meiningu til viðbótar við að hafa réttan syntax. SQML og XML skjöl skilgreina syntax, en HTML og XHTML skilgreina meiningu. Ef þú bætir við óstöðluðum elementum, þá ert þú að öllum líkindum sá eini, eða sú eina sem skilur meininguna á bakvið þau og eftir 50 ár er jafnvel ekki víst að þú vitir það …
Auðvitað er hægt að gera tilraunir, t.d. þegar þú ert að prófa þig áfram með vef staðla framtíðarinnar, en að öðru leiti ætti ekki að nota óstöðluð element.